Vörunr. MN893SO/A
Nýja Apple TV 4K tækið tekur bestu þættina, kvikmyndirnar, íþróttirnar og útsendingarnar saman með þínum uppáhalds Apple tækjum og þjónustum. Upplifðu fleiri leiðir til þess að njóta Apple TV með Photos, App Store og Apple Music, og notaðu nýju fjarstýringuna með uppfærðum snertifleti til að stjórna öllu.
Með ethernet porti fyrir stöðuga og hraða nettengingu.
Mynd
4K myndgæði, ótrúleg gæði og litir með HDR tækni eins og Dolby Vision og nú HDR10+ svo allt sem þú horfir á er stórkostlegt á stærsta skjánum þínum.
Hljóð
Yfirnáttúrulegur hljómur með Dolby Atmos 5.1 og 7.1 hljóð gefur umvefjandi hljóm sem er eins og komi úr öllum áttum á Dolby Atmos studdum hljóðtækjum
Fjarstýring
Snertiflötur á aðaltökkunum leyfir þér auðveldlega að skruna í gegnum þætti, atriði eða ramma með snöggri hringlaga hreyfingu. Slökktu eða kveiktu á sjónvarpinu, spilaðu leiki í Apple Arcade og stjórnaðu hljóðstyrknum.
Sérstakur Siri takki, alveg eins og iPhone. Siri er með nýtt útlit og vibe á Apple TV, auðveld leið til að nota Apple TV, Siri lærir raddir allt að 6 manns á heimilinu og veit hver er að tala við sig og getur komið með uppástungur sérvaldar fyrir hvern og einn.
Snjöll tenging
Þú getur notað iPhone sem fjarstýringu við Apple TV og birtast stjórntakkarnir sjálfkrafa á skjánum þegar síminn er tengdur.
Þú getur fínstillt litina í Apple TV með iPhone, einfaldlega tengdu símann við Apple TV og láttu tæknina redda málunum fyrir þig, sjáðu svo hversu flott myndefnið raunverulega á að líta út.
Fáðu tilboð hjá okkur í síma, internet eða sjónvarp. Fyrir þig eða alla fjölskylduna. Besti díllinn gæti verið handan við hornið.